Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fim 12. mars 2026 22:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sambandsdeildin: Albert hetja Fiorentina - Markalaust hjá Palace og AEK Larnaca
Mynd: EPA
Albert Guðmundsson var hetja Fiorentina þegar liðið vann endurkomusigur gegn Rakow á heimavelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.

Albert byrjaði á bekknum en kom inn á eftir klukkutíma leik. Strax í kjölfarið komst Rakow yfir en Cher Ndour jafnaði metin stuttu síðar.

Það var mikil dramatík í lokin en Fiorentina fékk vítaspyrnu í uppbótatíma og Albert skoraði úr vítinu og tryggði Fiorentina sigurinn.

Crystal Palace tók á móti AEK Larnaca frá Kýpur en liðin mættust í deildarkeppninni þar sem Larnaca vann 1-0.

Enska liðið var með öll völd á vellinum í kvöld en markvörður Larnaca átti frábæran leik. Þetta endaði með markalausu jafntefli í kvöld og ljóst að Palace þarf að gera mun betur í seinni leiknum ytra.

AEK Aþena er í ansi góðum málum eftir öruggan sigur á Celje á útivelli. Þá gerðu Sigma Olomouc og Mainz markalaust jafntefli.

Crystal Palace 0 - 0 AEK Larnaca

Fiorentina 2 - 1 Rakow
0-1 Jonatan Brunes ('60 )
1-1 Cher Ndour ('62 )
2-1 Albert Gudmundsson ('90 , víti)

Celje 0 - 4 AEK
0-1 Barnabas Varga ('3 )
0-2 Aboubakary Koita ('33 )
0-3 Mijat Gacinovic ('36 )
0-4 Harold Moukoudi ('49 )

Olomouc 0 - 0 Mainz
Athugasemdir
banner