Árbæingurinn Ari Leifsson, leikmaður Kolding, gæti verið á leið heim. Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, sagði frá því í Dr. Football að bæði Breiðablik og KA hafi boðið Ara samning.
Samningur hans við danska félagið rennur út í sumar og ef hann ákveður að klára tímabilið þar og koma svo heim til Íslands mun hann ekki koma til Íslands fyrr en í glugganum í júlí.
Samningur hans við danska félagið rennur út í sumar og ef hann ákveður að klára tímabilið þar og koma svo heim til Íslands mun hann ekki koma til Íslands fyrr en í glugganum í júlí.
Ari er 27 ára miðvörður sem uppalinn er hjá Fylki og var keyptur til norska félagsins Strömsgodset fyrir tímabilið 2020. Hann fór svo til Kolding eftir tímabilið 2023.
Ari hefur lítið spilað á þessu tímabili, einungis komið inn á í tveimur deildarleikjum, eftir að hafa verið í stóru hlutverki fram að meiðslum á síðasta tímabili. Ari á að baki fjóra A-landsleiki, spilaði sinn fyrsta árið 2020 og svo þrjá leiki 2022. Allt eru það vináttulandsleikir.
KA hefur verið að skoða möguleika með miðvarðarstöðuna eftir að Breiðablik keypti Ívar Örn Árnason af þeim. Ari þekkir vel til þjálfara Breiðabliks, Ólafs Inga Skúlasonar, en þeir léku saman í Fylki áður en Ari hélt erlendis.
Athugasemdir

