Fotbolti.net
12.04.24 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Klopp: Lofa því að við munum svara þessu

Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp stjóri Liverpool segist handviss um að liðið muni svara 0-3 tapinu ljóta gegn Atalanta.

„Ég tel að þetta sé ekki almennur lágpunktur hjá okkur, en frammistöðulega séð þá var þetta klárlega lágpunktur. Það góða við svona slæma frammistöðu er að þú getur spilað betur. Okkur líður illa með leikinn í gær en ætlum að svara gegn Palace," segir Klopp.

Liverpool steinlá á Anfield í gær í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Liverpool fær Crystal Palace í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Þar er liðið í öðru sæti, með jafnmörg stig og topplið Arsenal en hefur lakari markatölu.
Karl Friðleifur spáir í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
TENGT EFNI

Karl Friðleifur spáir í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

„Við þurfum að sýna viðbrögð, alveg klárt mál. En þetta var ekki í fyrsta sinn í lífinu sem ég tapa fótboltaleik, því miður. En við munum svara, ég get lofað því."

Klopp segir að það sé engin pressa á sér að dreifa álaginu á leikmannahópnum.

„Það er engin pressa, svona er bara staðan. Ég þarf að taka ákvarðanir byggðar á því hverjir eru klárir í slaginn," segir Klopp.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.