12.05.15 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Heimir Einarsson í Kára (Staðfest)

Heimir Einarsson (til vinstri).

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Heimir Einarsson (til vinstri).

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Kári hefur fengið liðsstyrk fyrir keppni í 3. deildinni í sumar en Heimir Einarsson hefur ákveðið að taka slaginn með liðinu í sumar.
Heimir var fastamaður í vörn ÍA á sínum tíma en þessi 28 ára gamli leikmaður hefur ekkert spilað síðan árið 2011 vegna meiðsla.
Heimir var fastamaður í vörn ÍA á sínum tíma en þessi 28 ára gamli leikmaður hefur ekkert spilað síðan árið 2011 vegna meiðsla.
„Heimir sem hefur átt við gríðarlega erfið meiðsli að stríða síðustu ár hefur prófað að mæta á æfingar með Kára í vor og hefur það gengið framar vonum en hann mun taka eitt skref í einu og vonandi mun honum ganga vel í sumar enda gríðarlega öflugur leikmaður á besta aldri,\" segir á Facebook síðu Kára.
„Við bjóðum Heimir Einarsson velkominn í Kára og vonum að honum eigi eftir að ganga vel í Káratreyjunni.\"
Kári hefur einnig fengið Sigurjón Guðmundsson í sínar raðir frá Magna en liðið hefur leik í 3. deildinni gegn Víði á laugardag.