Ben White, varnarmaður Arsenal, verður ekki meira með liðinu á tímabilinu vegna hnémeiðsla. Þá er hann jafnframt talinn líklegur til að missa af HM með enska landsliðinu.
White meiddist í fyrri hálfleik í sigri Arsenal gegn West Ham á sunnudaginn og yfirgaf völlinn með spelku á hné.
White meiddist í fyrri hálfleik í sigri Arsenal gegn West Ham á sunnudaginn og yfirgaf völlinn með spelku á hné.
Félagið staðfesti í tilkynningu að White hefði orðið fyrir alvarlegum meiðslum á liðbandi í hné. Hann missir því af síðustu tveimur leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni og úrslitaleik Meistaradeildarinnar 30. maí.
Hann hefur spilað 30 leiki í öllum keppnum á tímabilinu og byrjað síðustu fimm leiki Arsenal.


