Fotbolti.net
12.05.26 - 13:14
Kári Snorrason

Pep: Við erum ennþá í baráttunni

Pep og Arteta.

Pep og Arteta.

Canon

Mynd: EPA

Manchester City tekur á móti Crystal Palace annað kvöld í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal er í bílstjórasætinu í titilbaráttunni en Skytturnar unnu dramatískan sigur á West Ham um helgina og þar með styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar.

Guardiola var spurður út í sigur Arsenal á blaðamannafundi í dag og hvernig hann hefði brugðist við úrslitunum.
„Ég er bara með einbeitingu á Crystal Palace og að hugsa um hvað ég þarf að gera. Maður þarf að alltaf að læra sem stjóri, hverju þú stjórnar til að gera betur og hvað hefur klikkað, til þess að komast í betri stöðu. Við erum ennþá í baráttunni.“

West Ham jafnaði metin undir lok leiks en markið var dæmt af. Pep sagðist ekki geta dæmt um hvort að það hafi verið réttur dómur.

„VAR var ekki sett á laggirnar síðustu helgi, það hefur verið hér í mörg ár. Við aðlögumst, við vitum það. Allir vita það.“

Þá sagði hann stöðuna á liðinu góða. Rodri og Khusanov eru báðir að koma til baka og eru klárir að snúa aftur í hópinn.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.