12.05.26 - 16:30
Kári Snorrason
Stuðningsmenn Chelsea mótmæla fyrir bikarúrslitaleikinn

Frá mótmælum á síðasta ári.

Mynd: EPA

Frá mótmælum á síðasta ári.

Mynd: EPA
Stuðningsmenn Chelsea ætla að mótmæla eigendahópi félagsins, BlueCo, fyrir úrslitaleik FA bikarsins gegn Manchester City á Wembley á laugardaginn.
Stuðningsmannahópurinn 'Not A Project CFC' er búið að skipuleggja göngu fyrir leikinn og er búist við að þúsundir stuðningsmanna mótmæli með þeim.

Þá ætla stuðningsmenn að snúa baki í völlinn á 22. mínútu leiksins og vísa þar í árið 2022 þegar BlueCo tók við félaginu.
Stuðningsmenn Chelsea eru hvað óánægðastir með eigendurna Todd Boehly og Behdad Eghbali sem hafa verið mest í sviðsljósinu. Stuðningsmenn telja þá reka Chelsea sem fjárfestingarverkefni frekar en knattspyrnufélag.
Félagið rak Liam Rosenior úr stjórastólnum í síðasta mánuði og er nú leit hafin að fimmta fastráðna stjóranum síðan BlueCo tók við rekstri Chelsea.

Behdad Eghbali og Todd Boehly.

Mynd: EPA