Byrjunarlið Ægir og Breiðablik: Nauðsynlegar skiptingar og einn náttúrulegur miðvörður

Baptiste Gateau leikmaður Ægir

Mynd: Ægir

Ásgeir Helgi ekki í hóp hjá Blikum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Baptiste Gateau leikmaður Ægir

Mynd: Ægir

8-liða úrslit Mjólkurbikarins halda áfram í dag. Ægir fær Breiðablik til sín á GeoSalmo völlinn í Þorlákshöfn klukkan 17:30.
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir tvær nauðsynlegar breytingar frá síðasta leik sem var 4-3 tap fyrir Fram í Bestu Deildinni. Viktor Örn Margeirsson er í banni eftir að hafa fengið beint rautt spjald í 16-liða úrslitum. Síðan fór Höskuldur meiddur útaf í leiknum gegn Fram og þeir tveir því ekki í liðinu í dag. Inn fyrir þá koma Óli Valur Ómarsson og Kristinn Steindórsson.
Nenad Zivanovic þjálfari Ægis gerir einnig tvær breytingar. Í byrjunarliðið koma þeir Kristinn Ásgeir og Baptiste Gateau. En síðasti leikur sem Baptiste spilaði var einmitt bikarleikurinn gegn KA í síðustu umferð en hann var tekinn útaf eftir 25mínútur vegna meiðsla.
Byrjunarlið Ægir
- 1. Ómar Castaldo Einarsson (m)
- 7. Kristinn Ásgeir Þorbergsson
- 8. Atli Rafn Guðbjartsson
- 9. Jordan Adeyemo
- 11. Stefan Dabetic (f)
- 16. Markús Máni Jónsson
- 19. Nikola Kristinn Stojanovic
- 20. Alfredo Ivan Arguello Sanabria
- 22. Harley Bryn Willard
- 24. Paul Leonard Skoczylas JR
- 50. Baptiste Gateau
Byrjunarlið Breiðablik
- 1. Anton Ari Einarsson (m)
- 5. Ívar Örn Árnason
- 6. Arnór Gauti Jónsson
- 8. Viktor Karl Einarsson (f)
- 9. Óli Valur Ómarsson
- 10. Kristinn Steindórsson
- 11. Aron Bjarnason
- 13. Anton Logi Lúðvíksson
- 15. Ágúst Orri Þorsteinsson
- 18. Davíð Ingvarsson
- 23. Kristófer Ingi Kristinsson

Ásgeir Helgi ekki í hóp hjá Blikum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
