Fotbolti.net
18.10.26 - 13:10
Brynjar Ingi Erluson

Thelma Karen skrefi nær titlinum eftir sigur í toppslag

Thelma Karen byrjaði í titilbaráttuslagnum gegn Hammarby

Thelma Karen byrjaði í titilbaráttuslagnum gegn Hammarby

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Kvennaboltinn
Thelma Karen Pálmadóttir og stöllur hennar í Häcken tóku stórt skref í átt að sænska meistaratitlinum með sannfærandi 3-0 sigri á Hammarby í toppslag deildarinnar í dag.
Häcken, sem er ríkjandi Svíþjóðarmeistari, var með fimm stiga forskot á Hammarby fyrir umferðina og fékk síðarnefnda liðið því kjörið tækifæri til að hleypa spennu í toppbaráttuna.

Það fór hins vegar á allt annan veg því Häcken vann sannfærandi 3-0 sigur og tók þar með stórt skref í átt að því að verja meistaratitilinn.

Tabby Tindell skoraði tvö marka Häcken og er nú markahæst í deildinni með 14 mörk á tímabilinu.

Thelma var í byrjunarliði Häcken en Guðrún Arnardóttir og Ída Marín Hermannsdóttir byrjuðu báðar hjá Hammarby.

Häcken er nú á toppnum með 61 stig, átta stigum meira en Hammarby þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu.

Í næstu umferð heimsækir Häcken lið Växjö á meðan Hammarby mætir Djurgården í nágrannaslag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.