Fotbolti.net
12.07.15 - 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ronaldinho til Fluminense (Staðfest)

Ronaldinho snýr heim

Ronaldinho snýr heim

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski snillingurinn, Ronaldinho, hefur skrifað undir samning til ársins 2016 við Fluminense í heimalandinu.

Ronaldinho hefur verið sterklega orðaður við Antalyaspor í Tyrklandi, en hann ákvað þó frekar að ganga til liðs við Fluminense og hjálpa þeim að vinna fimmta Brasilíutitilinn.
\"Það var eitt af því sem fékk mig til að fara heim til Brasilíu, að ná í titilinn sem ég á eftir að vinna og það að spila með með svona frábærum leikmönnum,\" sagði Ronaldinho

\"Þetta er mjög svalt verkefni og ég er mjög ánægður\"

Ronaldinho spilaði áður með erkifjendum Fluminense, í Flamnego.

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.