mið 12. ágúst 2020 22:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sancho: Elska að spila með þessum strákum
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho spilaði í dag æfingaleik með Borussia Dortmund þegar liðið vann 6-0 stórsigur á Rheindorf Altach í Austurríki.

Sancho spilaði fyrri hálfleikinn en hann hefur verið sterklega orðaður við Manchester United. Dortmund segist hins vegar ekki ætla að selja hann í sumar.

Sancho, sem er tvítugur að aldri, fór í viðtal við sjónvarpsstöð Dortmund eftir leikinn í dag og fór þar fögrum orðum um þýska félagið.

„Ég elska að spila með þessum strákum. Þetta er sérstakur hópur," sagði Sancho.

„Við erum með sérstaka unga leikmenn að koma upp. Ég er mjög ánægður að deila velli með þeim og leiðbeina þeim. Ég var einu sinni í þeirra skóm, að spila með eldri leikmönnum. Ég er ánægður fyrir þeirra hönd," sagði Sancho en útlit er fyrir það núna að hann verði áfram í Þýskalandi.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner