Fotbolti.net
28.09.26 - 22:09
Brynjar Ingi Erluson

Ferdinand: Man Utd má ekki láta fimmtán ára strák ráðskast með sig

JJ Gabriel

JJ Gabriel

Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að félagið megi ekki láta fimmtán ára strák ráðskast með sig, en hann ræddi málið á YouTube-rás sinni.
Líklegast að undrabarn Man Utd fari utan Englands
TENGT EFNI

Líklegast að undrabarn Man Utd fari utan Englands

Ferdinand var þar að ræða enska vængmanninn JJ Gabriel, sem er sagður vilja komast frá félaginu.

Gabriel er 15 ára gamall og talinn einn efnilegasti leikmaður Englands. Talið er að hann vilji fara til Real Madrid og getur hann gert það þegar hann verður 16 ára í næsta mánuði.

Margir hafa rætt þetta óvænta útspil Gabriels gagnvart United, en Ferdinand, sem telur hann gríðarlegt efni, segir að félagið megi ekki láta ráðskast með sig.

„Fyrst og fremst skulum við ræða hversu ótrúlega hæfileikaríkur þessi strákur er. Það er bilun og ég hreinlega veit ekki hvar þakið er því ég hef séð hann spila, æfa og hlustað á fólk sem hefur þjálfað hann í fleiri ár. Það er enginn vafi á því að hann er á leið á toppinn.“

„Ég held að við þurfum að skilja ástæðurnar fyrir því af hverju hann vill fara frá félaginu. Það er ekki 15 ára strákur sem tekur svona ákvarðanir einn. Fjölskylda hans gæti haft sínar ástæður.“

„Aðrir strákar munu líta á þetta sem fordæmi og sem fótboltafélag máttu ekki líta út fyrir að vera veikburða. Ég vil samt ítreka að ég veit ekki allar staðreyndir málsins þó ég vildi gjarnan gera það.“

„Eru þeir óþolinmóðir eða finnst þeim hann eiga skilið mínútur nú þegar? Var þeim lofað einhverju og eru þeir núna pirraðir yfir því?“

„Ég man eftir því að hafa horft á hann á æfingu þar sem hann var í skotæfingu með Bruno Fernandes. Þarna var leikmaður ársins hjá PFA og einn besti miðjumaður heims. Það hefði verið nóg fyrir fimmtán ára Rio, en kannski er hann með háleit markmið og vill spila.“

„Man Utd má samt ekki láta fimmtán ára strák ráðskast með sig, sama hversu góður hann er. Hver sem útkoman verður þá þarf Man Utd að vera sterkt í gegnum þetta ferli,“
sagði Ferdinand.
Rio Ferdinand

Rio Ferdinand

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.