Fotbolti.net
28.09.26 - 09:36
Elvar Geir Magnússon

Ekki í hópnum eftir að hafa lamið Ungfrú Lúxemborg

Gerson Rodrigues í leik á laugardalsvelli 2023.

Gerson Rodrigues í leik á laugardalsvelli 2023.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Gerson Rodrigues, markahæsti leikmaður í sögu landsliðs Lúxemborgar, hefur ekki spilað í landsliðstreyjunni síðan í júní á síðasta ári.

Hann fékk skilorðsbundinn 18 mánaða fangelsisdóm fyrir líkamsárásir fyrir utan næturklúbb og heimilisofbeldi en hann var dæmdur fyrir að hafa barið þáverandi kærustu sína, Emilie Boland, í nóvember 2022. Boland var valin Ungfrú Lúxemborg 2020.
Rodriguez er 31 árs og skoraði í 1-1 jafnteflinu gegn Íslandi á Laugardalsvelli 2023. Hann gekk nýlega í raðir úkraínska liðsins Zorya Luhansk.

Í viðtali fyrr á árinu sagðist hann binda vonir við að snúa aftur í landsliðstreyjuna.

„Ég er ekki búinn með söguna mína enn þá. Í bili er staðan sú sem hún er. En hver segir að við getum ekki haldið áfram að skrifa sögu Lúxemborgar saman í framtíðinni?“ sagði Rodriguez sem hefur skorað 23 mörk í 72 landsleikjum.

Lúxemborg og Ísland mætast í C-deild Þjóðadeildarinnar annað kvöld. Fótbolti.net er á staðnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.