Fotbolti.net
29.09.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

„Verð skuldugur ítölsku þjóðinni næstu fjögur árin“

Bastoni fagnar marki sínu gegn Tyrkjum

Bastoni fagnar marki sínu gegn Tyrkjum

Canon

Mynd: EPA

Alessandro Bastoni, varnarmaður ítalska landsliðsins, var ánægður eftir að hafa skorað í 4-1 sigrinum á Tyrklandi í Þjóðadeildinni í gær, en var síðan spurður út í eitt versta augnablik ferilsins.
Þjóðadeildin: Einstaklingsframtak Olise tryggði Frökkum sigur
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Einstaklingsframtak Olise tryggði Frökkum sigur

Bastoni skoraði fyrir Ítalíu, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa verið skúrkurinn í landsliðinu.

Í umspilinu gegn Bosníu fékk Bastoni rauða spjaldið sem reyndist dýrkeypt og Bosnía fór óvænt áfram eftir vítakeppni.

Margir töldu að Bastoni þyrfti að taka sér hlé frá landsliðinu eftir þann leik og ætti jafnvel ekki afturkvæmt, en hann tók ábyrgðina á sig og segist staðráðinn í að hjálpa liðinu að byggja sig upp á ný.

„Það var óumflýjanlegt að hugur minn færi aftur til Zenica.“

„Ég verð skuldugur ítölsku þjóðinni næstu fjögur árin en þegar ég mæti erfiðum stöðum þá hef ég alltaf valið það að halda haus og taka ábyrgð.“

„Síðustu ár höfum við lent á botninum, en við viljum komast aftur á lappir. Eina sem við biðjum um er smá jafnvægi og þolinmæði varðandi það að dæma liðið því það eru margir ungir leikmenn hérna sem vilja læra,“
sagði Bastoni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.