Fotbolti.net
29.09.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Ísland í dag - Ótrúlega mikilvægur leikur hjá U21

U21 fær Sviss í heimsókn

U21 fær Sviss í heimsókn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Íslenska U21-landsliðið tekur á móti Sviss í ótrúlega mikilvægum leik í undankeppni Evrópumótsins á PEPSI-vellinum klukkan 15:00 í dag.
Það sem U21 þarf að gera til að komast í umspil
TENGT EFNI

Það sem U21 þarf að gera til að komast í umspil

Staðan er þannig að Ísland þarf helst á þremur stigum að halda ætli liðið sér að ná öðru sæti riðilsins.

Sviss er í 2. sæti með 17 stig eftir átta leiki, en Ísland er í 4. sæti með 12 stig, jafnmörg og Færeyjar sem eru ofar vegna innbyrðisviðureigna.

Með sigri í dag kæmi Ísland sér í góða stöðu en Sviss heimsækir topplið Frakka í lokaumferðinni á meðan Ísland spilar við Færeyjar þá í mögulegum úrslitaleik um annað sætið, en of snemmt að fara ræða þá möguleika.

Jafntefli eða tap mun binda enda á vonir Íslands um að komast á lokamótið.

Leikur dagsins:
15:00 Ísland-Sviss (PEPSI völlurinn)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Frakkland7+1717
2Sviss8+1017
3Ísland8+512
4Færeyjar8-612
5Lúxemborg7-124
6Eistland8-142
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.