Tammy Abraham, framherji Chelsea, skoraði sitt tíunda mark í ensku úrvalsdeildinni í sigri Chelsea á Crystal Palace um helgina.
Það hefur tekið hann aðeins tólf leiki að skora þessi tíu mörk en til samanburðar þá hefur Marcus Rashford, framherji Man Utd, aldrei skorað fleiri en tíu mörk á einu tímabili í deildinni.
Það hefur tekið hann aðeins tólf leiki að skora þessi tíu mörk en til samanburðar þá hefur Marcus Rashford, framherji Man Utd, aldrei skorað fleiri en tíu mörk á einu tímabili í deildinni.
Rashford hefur aðeins einu sinni náð að skora tíu mörk í deildinni á þremur tímabilum hjá United. Það tók Rashford 32 leiki til að skora fimm mörk á sínu fyrsta heila tímabili með United. Í kjölfarið skoraði hann sjö mörk í deildinni tímabilið 2017/18.
Þessi hörku byrjun hjá Abraham hefur skilað sér í því að Gareth Southgate, stjóri enska landsliðsins, hefur valið hann í hópinn fyrir leiki gegn Svartfjallalandi og Kósóvó í undankeppni EM.
Athugasemdir