Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fim 12. nóvember 2020 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Allt undir í Búdapest
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld klukkan 19:45 hefst viðureign Ungverjalands og Íslands í úrslitaleik A-deildar umspilsins í Þjóðadeildinni. Leikið er um laust sæti á EM2020 sem þrátt fyrir ártalið verður haldið næsta sumar.

Leikurinn fer fram fyrir luktum dyrum á Puskas Arena í Búdapest. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en einnig verður hægt að fylgjast með leiknum hér á Fótbolti.net í beinni textalýsingu.

Allir leikmenn íslenska liðsins, af þeim sem mættu til Ungverjalands, eru klárir í slaginn og sömu sögu er að segja af ungverska liðinu. Marco Rossi, þjálfari Ungverjanna, verður þó ekki á hliðarlínunni þar sem hann er með kórónaveiruna.

Sjá einnig:
Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Ungverjalandi

EM 2020 - umspil
19:45 Ungverjaland-Ísland (Puskás Arena)
Athugasemdir
banner
banner