Fotbolti.net
12.11.24 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Zirkzee strax á förum? - Orðaður við stórt félag á Ítalíu

Joshua Zirkzee.

Joshua Zirkzee.

Canon

Mynd: EPA

Joshua Zirkzee gæti farið aftur til Ítalíu í janúar eftir aðeins nokkra mánuði hjá Manchester United.

Þessi 23 ára leikmaður var keyptur frá Blogna á 36,5 milljónir punda á liðnu sumri en hann hefur engan veginn heillað á Old Trafford. Hann hefur verið afskaplega dapur frá því hann skoraði gegn Fulham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Eigi að selja Zirkzee strax - „Lítur ekki út eins og fótboltamaður"
TENGT EFNI

Eigi að selja Zirkzee strax - „Lítur ekki út eins og fótboltamaður"

Tuttosport segir að Man Utd sé að skoða það að losa sig við Zirkzee strax og það er áhugi á honum hjá stóru félagi á Ítalíu.

Félagið sem um ræðir er Juventus. Þar eru meiðslavandræði í fremstu víglínu og þá þekkir Thiago Motta, þjálfari liðsins, mjög vel til Zirkzee. Hann þjálfaði hann í Bologna.

Ruben Amorim er tekinn við Man Utd og það er spurning hvort hann trekki Zirkzee í gang, eða hvort þetta verði einfaldlega stutt gaman hjá Hollendingnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.