12.11.26 - 11:55
Kári Snorrason
Myndir: Snjómokstur í Laugardal fyrir U21-leikinn

Moksturinn gekk vel.

Mynd: Fótbolti.net - GÞ

Moksturinn gekk vel.

Mynd: Fótbolti.net - GÞ

Íslenska U21 landsliðið mætir Grikklandi á Pepsí-vellinum klukkan 13:00 í dag. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna í umspili um sæti á EM sem fram fer í Albaníu og Serbíu á næsta ári.

TENGT EFNI
Veðbankar spá grískum sigri í Laugardal
Fyrsti snjór vetrarins féll á höfuðborgarsvæðinu í nótt og þurftu starfsmenn KSÍ því að skafa snjó af vellinum fyrir skemmstu til þess að gera völlinn leikfæran.
Hitastigið verður við frostmark á meðan leik stendur en ekki er spáð úrkomu.
Leikurinn er að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net en KSÍ og bakhjarlar bjóða frítt inn á völlinn.