Fotbolti.net
12.11.26 - 09:36
Kári Snorrason

Veðbankar spá grískum sigri í Laugardal

Flautað verður til leiks klukkan 13:00.

Flautað verður til leiks klukkan 13:00.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Íslenska U21 árs landsliðið tekur á móti því gríska á Pepsí-vellinum í Laugardal í hádeginu í dag. Um er að ræða fyrri umspilsleik liðanna upp á sæti á EM í Albaníu og Serbíu næsta sumar.

Flautað verður til leiks klukkan 13:00 og býður KSÍ ásamt bakhjörlum sínum inn á völlinn.

Veðbankar telja Grikkland sigurstranglegri þrátt fyrir að vera á útivelli. Epicbet býður upp á 2.34 í stuðul á Grikkland en 3.00 er í stuðul á íslensku strákana. Jafntefli er með 3.46 í stuðul.
Líklegt byrjunarlið U21 - Löskuð miðja og Amin á bekknum?
TENGT EFNI

Líklegt byrjunarlið U21 - Löskuð miðja og Amin á bekknum?

Gríska liðið var nálægt því að fara beint á EM en liðið endaði með jafn mörg stig og Þýskaland í sínum riðli en með lakari markatölu. Liðið vann 3-2 sigur á Þjóðverjum fyrir ári síðan.

Daníel Tristan Guðjohnsen ræddi við Fótbolta.net í gær og kvaðst vera spenntur fyrir að fá Grikkina í heimsókn í kuldann.

„Ég held að þetta sé hörkulið. Þeir sýndu það alveg í sínum riðli að þeir eru mjög góðir. Voru góðir á móti Þýskalandi. Ég býst við hörkuleik,“ sagði Daníel fyrir æfingu liðsins í gærmorgun.
EM fer fram í Serbíu og Albaníu næsta sumar.

EM fer fram í Serbíu og Albaníu næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.