Arsenal fer með fjögurra marka forystu til Belgíu
Í dag fara fram síðustu 24 leikirnir í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Allar viðureignirnar má sjá neðst í fréttinni.
Í B-riðli er spenna um hvað tvö lið fara áfram. FC Kaupmannahöfn er í efsta sæti með níu stig, Malmö hefur átta og Dynamo Kiev er með sex. Malmö, með Arnór Ingva Traustason innanborðs, og FCK mætast innbyrðis í kvöld.
Í B-riðli er spenna um hvað tvö lið fara áfram. FC Kaupmannahöfn er í efsta sæti með níu stig, Malmö hefur átta og Dynamo Kiev er með sex. Malmö, með Arnór Ingva Traustason innanborðs, og FCK mætast innbyrðis í kvöld.
Í C-riðli leika Getafe og Krasnodar, þar sem Jón Guðni Fjóluson spilar, úrslitaleik um hvort liðið fylgir Basel áfram.
A- og D-riðlarnir eru ráðnir en Lazio á enn möguleika í E-riðlinum, þarf að sigra sinn leik og treysta á úrslit úr hinni viðureigninni.
Í F-riðli berjast Standard Liege, Arsenal og Eintracht Frankfurt um efstu tvö sætin. Arsenal sækir Liege heim í kvöld. Arsenal hefur þriggja stiga forskot á Standard og kemst áfram með betri úrslitum heldur en 4-0 tapi.
G-riðilinn er galopinn og geta öll lið riðilsins farið áfram, Í H-riðli er Espanyol öruggt áfram og úrslitin í I-riðli eru ráðin.
Roma, Baseksihir og Gladbach berjast í J-riðli en í K-riðli eru Wolves og Braga komin áfram. Þá fer fram úrslitaleikur í riðli L þar sem Manchester United og AZ Alkmaar berjast um toppsætið.
Evrópudeildin 6. umferð - fimmtudaguir 12.12
Riðill A
17:55 APOEL - Sevilla
17:55 Qarabag - Dudelange
Riðill B
17:55 Dynamo K. - Lugano
17:55 FC Kobenhavn - Malmo FF
Riðill C
17:55 Basel - Trabzonspor
17:55 Getafe - FK Krasnodar
Riðill D
17:55 PSV - Rosenborg
17:55 LASK Linz - Sporting
Riðill E
17:55 Rennes - Lazio
17:55 Cluj - Celtic
Riðill F
17:55 Eintracht Frankfurt - Guimaraes
17:55 Standard - Arsenal
Riðill G
20:00 Porto - Feyenoord
20:00 Rangers - Young Boys
Riðill H
20:00 Ludogorets - Ferencvaros
20:00 Espanyol - CSKA
Riðill I
20:00 Wolfsburg - Saint-Etienne
20:00 Gent - Oleksandria
Riðill J
20:00 Roma - Wolfsberger AC
20:00 Gladbach - Istanbul Basaksehir
Riðill K
20:00 Wolves - Besiktas
20:00 Slovan - Braga
Riðill L
20:00 Man Utd - AZ
20:00 Partizan - Astana
Athugasemdir