Tottenham og Fulham mætast í ensku úrvalsdeildinni klukkan 20:15 en um frestaðan leik er að ræða.
Tottenham þarf á sigri að halda ætli liðið að blanda sér í toppbaráttuna á meðan Fulham er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, gerir margar breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Marine í FA-bikarnum þar sem hann hvíldi helstu byssurnar.
Harry Kane og Son Heung-Min koma inn í byrjunarliðið en þeir fengu frí um síðustu helgi.
Hjá Fulham er Bobby Reid fremstur en hann skoraði í framlengdum leik gegn QPR í FA-bikarnum um síðustu helgi. Þá er Ademola Lookman á bekknum en hann hefur verið öflugur fyrir lið Fulham í vetur.
Tottenham: Lloris (C), Aurier, Sanchez, Dier, Reguilon, Hojbjerg, Winks, Sissoko, Ndombele, Son, Kane.
(Varamenn: Hart, Alderweireld, Davies, Doherty, Dele, Lamela, Lucas, Bale, Vinicius)
Fulham:Areola, Aina, Andersen, Adarabioyo, Tete, Loftus-Cheek, Reed, Anguissa, Robinson, Cavaleiro, Reid.
(Varamenn: Rodak, Bryan, Kongolo, Hector, Ream, Onomah, Kebano, Lookman, Kamara)
Athugasemdir