Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. janúar 2021 17:30
Aksentije Milisic
Dembele til Atletico Madrid á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Moussa Dembele, framherji Lyon í Frakklandi, hefur gengið til liðs við Atletico Madrid á Spáni.

Dembele kemur til liðsins á láni frá Lyon en hann hefur þótt einn besti leikmaður liðsins undanfarin ár og hefur verið eftirsóttur af mörgum liðum í Evrópu.

Dembele er 24 ára og hefur skorað 32 mörk í 76 leikjum fyrir Lyon frá árinu 2018 en þar á undan gerði hann það gott með Celtic í Skotlandi.

Hann hefur spilað með öllum yngri landsliðum Frakklands og nú er hann kominn til Atletico og ætlar að freista þess að vinna spænsku deildina með liðinu en Atletico er í góðum málum í efsta sæti deildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner