Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 15:06
Elvar Geir Magnússon
Ívar Örn færist nær Breiðabliki
Ívar Örn er sagður nálgast Kópavoginn.
Ívar Örn er sagður nálgast Kópavoginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er orðið ansi hávært að Breiðablik sé að kaupa varnarmanninn Ívar Örn Árnason frá KA.

Blikar hafa ekki farið leynt með að félagið hefur verið í miðvarðarleit og Ívar er einn besti miðvörður Bestu deildarinnar.

Ívar, sem verður þrítugur á árinu, er algjör lykilmaður í liði KA og ljóst að það yrði mikil blóðtaka að missa hann.

Breiðablik reyndi að kaupa Ívar fyrir rúmu síðan en KA hafnaði þá háu tilboði í miðvörðinn. Samningur hans við KA rennur út eftir komandi tímabil.

Sögusagnir eru í gangi um að Breiðablik sé að kaupa Ívar á 15 milljónir króna en talað var um að félagið hefði gert 18 milljóna króna tilboð í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner