Fotbolti.net
13.02.26 - 16:50
Kári Snorrason
Skrifar frá: Viðtal

Sótti ekki um starfið sjálfur - „Svo fékk ég bara símtal og skrifaði undir samdægurs“

Damir segir ekki hafa átt von á að fá kallið í landsliðið.

Damir segir ekki hafa átt von á að fá kallið í landsliðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Damir Muminovic hefur tekið að sér nýtt hlutverk samhliða leikmannaferlinum en hann er orðinn einn af aðalþjálfurum 4. flokks hjá Haukum.

Damir er jafnframt í leikmannahópi Íslands sem mætir Mexíkó í vináttuleik síðar í mánuðinum. Hann gekk til liðs við Grindavík eftir tímabil þegar ljóst varð að hann yrði ekki áfram hjá Breiðabliki.

Damir segir sjálfur það hafa komið sér á óvart að vera í leikmannahópnum eftir að hann hafi tekið skrefið niður í Lengjudeildina.

Fótbolti.net ræddi við Damir um nýja starfið, landsliðskallið og sögusagnir um mögulega brottför frá Grindavík.
Damir tekur við 4. flokki Hauka
TENGT EFNI

Damir tekur við 4. flokki Hauka

Katrín sótti um starfið fyrir hann
Hvernig kom til að þú sért orðinn þjálfari hjá 4. flokki Hauka?
„Mig hefur alltaf langað til þess að fara í þjálfun. Maður er alltaf að leika sér að klippa leiki hjá sjálfum sér. Ég hef hugsað um þetta í mjög langan tíma en ég hef ekki haft tíma til þess, þar sem að við vorum alltaf í Evrópukeppnum og mikið af Evrópuleikjum hjá Breiðabliki.

Þetta kom þannig til að konan mín sá að það var verið að auglýsa eftir þjálfara hjá Haukum. Hún ákveður að senda þeim tölvupóst með fyrirspurn um þetta. Svo fékk ég bara símtal og skrifaði undir sama dag,“
segir Damir en konan hans er fjórfaldi Íslandsmeistarinn Katrín Ásbjörnsdóttir.

„Ég vissi ekkert af þessu en Heiðar (Birnir Thorleifsson), yfirþjálfari Hauka, heyrði í mér og sagðist hafa fengið ábendingu um að mig langaði að fara í þjálfun. Þá vissi ég strax að þetta hafi verið konan mín sem sagði honum frá þessu.“

Átti ekki von á að vera í hópnum
Damir hefur spilað sex landsleiki og gæti bætt þeim sjöunda gegn Mexíkó síðar í mánuðinum. Hann segir kallið óvænt.

„Ég bjóst við því að þetta væri búið - Sérstaklega eftir að ég færði mig niður í Lengjudeildina en þetta er geggjað. Ég hlakka mikið til. Þetta kom alveg mikið á óvart. Ray (Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur) hringdi í mig á sunnudagskvöldið og sagði að Arnar hafi valið mig. Síðan heyrði Arnar sjálfur í mér á mánudeginum.

Þetta verður fjör, þetta eru geggjaðir leikmenn. Gaman að fá Gylfa og Jóa inn í þetta, það styrkir hópinn klárlega,“
segir Damir sem hefur spilað sex landsleiki og gæti bætt við þeim sjöunda síðar í mánuðinum.

Ekki á förum frá Grindavík
Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football var Damir orðaður við KA, undirritaður bar þetta undir hann og spurði hvort að hann hefði sjálfur eitthvað heyrt að norðan.

„Nei, ég hef ekki heyrt það. Ég er bara mjög ánægður þar sem ég er núna og er ekki að fara neitt.“

Þú útilokar þá brottför frá Grindavík?
„Já, ég útiloka það. Ég er mjög ánægður þar og spennandi hlutir að gerast hjá Grindavík. Ég er ekki að fara neitt.“
Damir, Katrín og börn.

Damir, Katrín og börn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Damir getur bætt við sjöunda landsleiknum á ferilskránna í lok mánaðar.

Damir getur bætt við sjöunda landsleiknum á ferilskránna í lok mánaðar.

Canon

Mynd: KSÍ

Er ekki á förum frá Grindavík.

Er ekki á förum frá Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.