Fotbolti.net
13.02.26 - 09:15
Elvar Geir Magnússon

Svakalegt flakk á strákunum okkar - Fjórir leikir í einum glugga

Hákon Arnar Haraldsson, landsliðsmaður Íslands.

Hákon Arnar Haraldsson, landsliðsmaður Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

UEFA hefur birt leikjaniðurröðun fyrir Þjóðadeild karla en dregið var í riðla í gær. Ísland leikur þar í C-deild og er með Búlgaríu, Eistlandi og sigurvegaranum í umspili Lúxemborgar og Möltu í riðli.

Leikirnir fara fram í september, október og nóvember.

Landsliðsdagatalið er talsvert breytt og verður einn stór þriggja vikna landsleikjagluggi frá september og inn í október.

Á ellefu daga kafla mun Ísland spila fjóra leiki. Ekki nóg með það heldur byrjar íslenska liðið á heimaleik, fer svo í útileik í Lúxemborg eða Möltu, heldur aftur heim á Laugardalsvöll og endar svo í Tallinn í Eistlandi. Alvöru flakk á strákunum okkar!
Riðill Íslands í Þjóðadeildinni: Búlgaría og Eistland bíða
TENGT EFNI

Riðill Íslands í Þjóðadeildinni: Búlgaría og Eistland bíða

Leikir Íslands

Ísland - Eistland laugardaginn 26. september
Lúxemborg/Malta - Ísland þriðjudaginn 29. september
Ísland - Búlgaría laugardaginn 3. október
Eistland - Ísland þriðjudaginn 6. október

Búlgaría - Ísland föstudaginn 13. nóvember
Ísland - Lúxemborg/Malta mánudaginn 16. nóvember

Liðið sem vinnur riðilinn kemst beint í B-deildina, liðið sem enda í öðru sæti fer í umspil um sæti í B-deild. Liðið í þriðja sæti fer í umspil um fall og liðið í neðsta sæti fellur beint í D-deild.
Svakalegt flakk á strákunum okkar - Fjórir leikir í einum glugga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.