Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
   mán 13. mars 2023 13:18
Elvar Geir Magnússon
Af hverju tekur Arsenal með sér risastóra klukku í útileikina?
Mynd: Instagram
Arsenal setur stefnuna á að vinna sinn fyrsta enska meistaratitil síðan 2004 en liðið trónir á toppnum og hélt áfram góðu gengi með 3-0 útisigri gegn Fulham á sunnudaginn.

Eftir leikinn birtist mynd af leikmönnum Arsenal í klefanum, þeir héldu á eftirlíkingu af klukkunni frægu sem er á Emirates en hékk áður uppi á Highbury.

Daily Mail segir að klukkan sé hluti af stærra plani til að skapa heimilislega klefastemningu á útileikjum, svo leikmönnum finnist eins og þeir séu á Emirates.

Auk klukkunnar er búið að hengja upp merki Arsenal og veggspjöld með liðsmyndum eins og sjá mátti í útiklefanum á Craven Cottage.

Klukkan goðsagnakennda var sett upp á Emirates vellinum 2010 eftir að hún hafði verið á gamla góða Highbury í yfir 70 ár.

Af þeim ellefu leikjum sem Arsenal á eftir í ensku úrvalsdeildinni eru fimm á útivöllum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 15 10 3 2 28 9 +19 33
2 Man City 15 10 1 4 35 16 +19 31
3 Aston Villa 15 9 3 3 22 15 +7 30
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 15 7 5 3 20 12 +8 26
6 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
7 Man Utd 15 7 4 4 26 22 +4 25
8 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
9 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
10 Sunderland 15 6 5 4 18 17 +1 23
11 Tottenham 15 6 4 5 25 18 +7 22
12 Newcastle 15 6 4 5 21 19 +2 22
13 Bournemouth 15 5 5 5 21 24 -3 20
14 Brentford 15 6 1 8 21 24 -3 19
15 Fulham 15 5 2 8 20 24 -4 17
16 Leeds 15 4 3 8 19 29 -10 15
17 Nott. Forest 15 4 3 8 14 25 -11 15
18 West Ham 15 3 4 8 17 29 -12 13
19 Burnley 15 3 1 11 16 30 -14 10
20 Wolves 15 0 2 13 8 33 -25 2
Athugasemdir