Arsenal hefur hafið viðræður við Declan Rice um nýjan langtímasamning. Núverandi samningur miðjumannsins rennur út eftir tvö ár en er með möguleika á árs framlengingu.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að samningstilboðið muni fela í sér launahækkun sem myndi gera hann meðal hæst launuðu leikmanna liðsins.
Rice þénar um 240 þúsund pund á viku, en liðsfélagi hans Bukayo Saka skrifaði nýlega undir samning sem nemur um 300 þúsund pundum á viku.
Rice gekk til liðs við Arsenal frá West Ham United árið 2023 fyrir um 105 milljónir punda. Hann hefur leikið 102 deildarleiki fyrir félagið og á að baki 72 landsleiki fyrir England.
Athugasemdir



