Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   fös 13. mars 2026 21:08
Ívan Guðjón Baldursson
Eiður Smári: Arsenal er bara betri útgáfan af Stoke
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Mynd: EPA
Hjörvar Hafliðason og félagar ræddu ýmislegt í lokaþætti vikunnar hjá Dr. Football og barst Arsenal í tal eftir jafntefli gegn Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hjörvar vildi hrósa Mikel Arteta þjálfara fyrir að vera að ná því allra besta úr leikmannahópnum sínum en Eiður Smári Guðjohnsen er ekki sérlega hrifinn.

„Mikel Arteta, þetta er ótrúlegur náungi. Þegar ég horfi á þetta lið þá eru þeir með frábæran djúpan miðjumann í Declan Rice. Þeir eru með tvo mjög góða miðverði en framávið þá eru þeir með Martinelli, Trossard og Eze sem eru bara fínir. Þetta er allt fínt, þetta er ekkert eitthvað framúrskarandi sem er í gangi þarna. Hann er að ná öllu sem hann getur úr þessu liði, erum við ekki búnir að vera alltof lítið að hrósa Mikel Arteta fyrir það sem hann er að gera?" sagði Hjörvar.

Eiður Smári svaraði og gagnrýndi umdeildan leikstíl Arsenal þar sem hann kallaði liðið betri útgáfu af Stoke City, sem var frægt áður fyrr fyrir harðan varnarleik og að leggja mikið upp úr föstum leikatriðum undir stjórn Tony Pulis.

„Ef hann klárar þetta þá er hann búinn að fá of mikla gagnrýni en það sjá allir hvernig þeir spila. Þetta er bara betri útgáfan af Stoke.

„Þegar þú ert kominn inn á þetta stig á tímabilinu þá er bara að drulla sér yfir línuna einhvern veginn. Það er tilfinningin sem maður hefur núna, þeir ætla bara einhvern veginn að drulla sér yfir línuna loksins."


Arsenal vann ensku úrvalsdeildina síðast fyrir meira en 20 árum síðan og hefur liðið nokkrum sinnum verið nálægt því að endurheimta titilinn án þess að takast ætlunarverk sitt. Þeir hafa þó sjaldan verið í betri stöðu á þessum tímapunkti deildartímabilsins.

„Ég hef skilning á því að reyna að vinna deildina en ég hef ekki skilning á hversu mikla áherslu er lagt á þessar hornspyrnur og að tefja. Þeir eru að setja alskonar met, leiðindamet sem þú vilt ekki láta bendla þig við og því miður er fókusinn orðinn svo mikill á fótbolta í dag að þetta gleymist hvernig Arsenal vann deildina. Við gátum ekki talað um að Leicester hafi verið leiðinlegir þegar þeir unnu deildina. Það kemur jafn mikið á óvart að Arsenal sé að vinna deildina eins og þegar Leicester vann á sínum tíma."

   13.03.2026 10:59
„Vil ekki særa Arteta en stend við ummæli mín“

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner
banner