Fotbolti.net
13.03.26 - 10:59
Elvar Geir Magnússon

„Vil ekki særa Arteta en stend við ummæli mín“

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

Canon

Mynd: EPA

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, talaði tæpitungulaust um leikstíl Arsenal í kringum viðureign liðanna nýlega. Arsenal vann 1-0 sigur en Hurzeler segir að Brighton hafi verið eina liðið sem reyndi að spila fótbolta í leiknum.

Fyrir leikinn gagnrýndi hann Arsenal fyrir leiktafir og sagði að liðið væri stundum að eyða heilli mínútu í að taka hornspyrnu þegar það væri með forystu. Hann tók þráðinn svo aftur upp eftir leikinn og sagði meðal annars:

„Ég verð aldrei stjóri sem mun reyna að vinna leiki svona. Enska úrvalsdeildin þarf skýrari reglur fyrir það þegar verið er að tefja leikinn."
Stjóri Brighton skaut á Arsenal - „Næsta spurning"
TENGT EFNI

Stjóri Brighton skaut á Arsenal - „Næsta spurning"

Á fréttamannafundi í morgun var Hurzeler spurður nánar út í þessi ummæli sín og samband sitt við stjóra Arsenal, Mikel Arteta.

„Ég er hrifinn af því sem Arsenal hefur afrekað hingað til á tímabilinu og hvernig Arteta og hans teymi hefur unnið. Ég verð fyrstur til að óska þeim til hamingju ef þeir vinna deildina," svaraði Hurzeler

„Ég vildi ekki særa neinn en hinsvegar stend ég fyllilega við það sem ég sagði. Ég var ekki ánægður með ákveðna hluti þennan dag og tölfræðin gefur mér staðfestingu. Við þurfum skýrari reglur þegar kemur að leiktöfum."

Hurzeler og Arteta sendu skilaboð sín á milli
„Ég hef sagt Mikel að ég dáist af verkum hans en ég vildi bara segja mína skoðun. Arteta er í mínum huga einn besti stjóri heims, hann er átrúnaðargoð, en það er mikilvægt að fela ekki þínar skoðanir. Sama þó þú sért hjá minna félagi," segir Hurzeler.

„Þetta kvöld lögðum við mikið á okkur til að vinna leikinn og mættum Arsenal liði sem var með aðra nálgun."

Hurzeler segist hafa sent Arteta skilaboð og þeir hafa verið að spjalla sín á milli.

„Ég er einstaklingur sem stend með mínum gildum og skoðunum. Þessi ummæli sköpuðu mikið umtal en það er mikilvægt að standa með sinni skoðun. Ég sagði Mikel að ég bæri gríðarlega virðingu fyrir honum. Við skiptumst á skilaboðum, hann sagði sína skoðun og ég mína. Fótbolti snýst um þetta, allir verja sína hlið," segir Hurzeler.

Mitoma tæpur
Leikstíll Arsenal er mikið til umræðu en eitt er ljóst; hann er allavega árangursríkur. Liðið er með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar. Brighton er í fjórtánda sæti og heimsækir spútniklið Sunderland á laugardag.

Hurzeler sagði frá því á fréttamannafundinum í dag að óvissa væri með þátttöku stjörnuleikmannsins Karou Mitoma í leiknum.
Mikel Arteta.

Mikel Arteta.

Canon

Mynd: EPA

Óvíst er hvort Mitoma geti spilað gegn Sunderland.

Óvíst er hvort Mitoma geti spilað gegn Sunderland.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.