Fotbolti.net
13.03.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Subway

England um helgina - Verður síðasti leikur Tudor á Anfield?

England um helgina - Verður síðasti leikur Tudor á Anfield?
Canon

Mynd: EPA

Þritugasta umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram um helgina. Chelsea er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Liðið fær Newcastle í heimsókn á morgun. Man City er sjö stigum á eftir toppliði Arsenal og á leik til góða. Liðið heimsækir West Ham annað kvöld.

Man Utd tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Michael Carrick í síðustu umferð gegn Newcastle. Liðið getur komist aftur á sigurbraut gegn Aston Villa sem hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið.

Það er áhugaverður leikur á sunnudaginn þar sem Liverpool fær Tottenham í heimsókn. Liverpool hefur verið langt frá sínu besta en Tottenham hefur verið í enn verri málum og Igor Tudor er strax undir mikilli pressu og þetta gæti verið síðasti leikurinn hans sem stjóri liðsins.

Umferðinni lýkur á mánudaginn þar sem Brentford fær botnlið Wolves í heimsókn en Wolves hefur unnið tvo deildarleiki í röð.
laugardagur 14. mars
15:00 Sunderland - Brighton
15:00 Burnley - Bournemouth
17:30 Chelsea - Newcastle
17:30 Arsenal - Everton
20:00 West Ham - Man City

sunnudagur 15. mars
14:00 Man Utd - Aston Villa
14:00 Crystal Palace - Leeds
14:00 Nott. Forest - Fulham
16:30 Liverpool - Tottenham

mánudagur 16. mars
20:00 Brentford - Wolves

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.