Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. maí 2020 22:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alli: Hræðileg lífsreynsla
Mynd: Getty Images
Eins og fram kom fyrr í kvöld var brotist inn hjá Dele Alli, leikmanni Tottenham Hotspurs skömmu eftir miðnætti aðfaranótt miðvikudags. Alli var kýldur og honum ógnað með hníf af tveimur innbrotsþjófum.

Samkvæmt ensku fjölmiðlum voru fimm eða sex manns heima hjá Alli í biljarðleik þegar brotist var inn á heimili leikmannsins í Norður-London.

Alli tjáði sig á Twitter í kvöld í kjölfar atburðarins. „Takk fyrir öll skilaboðin. Hræðileg lífsreynsla en við örum öll í lagi núna. Takk fyrir stuðninginn."

Færsluna má sjá hér að neðan. Málið er í rannsókn lögreglu.


Athugasemdir
banner
banner
banner