Núna er í gangi leikur Manchester United og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta er stórleikur á Old Trafford sem er mikilvægur upp á Meistaradeildarbaráttuna að gera. Man Utd er búið að tryggja sér Meistaradeildarsæti á meðan Liverpool heldur í vonina.
Liverpool lenti undir, 1-0 undir. Markið gerði Portúgalinn Bruno Fernandes - hver annar?
Um miðbik fyrri hálfleiks var dæmd vítaspyrna á Eric Bailly en svo var hún dregin til baka eftir VAR-skoðun. Hægt er að sjá myndband af atvikinu með því að smella hérna.
Man Utd byrjaði vel en Liverpool hefur verið sterkari aðilinn heilt yfir í fyrri hálfleik. Þeir voru að jafna metin, markið gerði Diogo Jota.
Hægt er að fylgjast með gangi mála með úrslitaþjónustu á forsíðu.
Athugasemdir