Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 13. maí 2021 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Þeir eru allir nálægt því að spila næsta leik"
Manga gæti spilað á móti Fylki.
Manga gæti spilað á móti Fylki.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þeir Brynjar Hlöðversson og Manga Escobar voru ekki í leikmannahópi Leiknis gegn KA í gær. Þeir léku báðir gegn Breiðabliki síðasta laugardag. Þá hefur Ósvald Jarl Traustason verið að glíma við meiðsli.

Sigurður Heiðar Höskuldsson var spurður út í stöðuna á þessum þremur leikmönnum í viðtali eftir leik í gær.

„Það er mjög stutt í Ósa, Binni fékk smá högg og við ákváðum að hvíla hann. Manga var líka slæmur í hnénu í nokkra daga. En þeir eru allir nálægt því að spila næsta leik," sagði Siggi.

Hann nýtti allar fimm skiptingar sínar í gær. Var eitthvað um meiðsli?

„Nei (ekki skipt af velli vegna meiðsla. Það var til þess að fá ferska fætur inn og hvíla fyrir næsta leik."

Viðtalið má sjá hér að neðan. Leiknir á næst leik gegn Fylki á sunnudag.
Athugasemdir
banner