Fotbolti.net
13.05.22 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Poyet: Tottenham á auðveldari leiki og mun taka fjórða sætið

Poyet: Tottenham á auðveldari leiki og mun taka fjórða sætið
Canon

Mynd: Getty Images

Eftir að Tottenham rúllaði yfir Arsenal í gær spáir Gus Poyet, fyrrum miðjumaður Tottenham, því að Spurs muni ná Meistaradeildarsætinu.

Arsenal er í fjórða sætinu, einu stigi á undan Tottenham, þegar bæði lið eiga tvo leiki eftir.
„Ef þú vilt sýna leikmanni hvernig spila eigi þennan leik þá getur þú sýnt honum fyrri hálfleikinn hjá Tottenham. Hvernig þeir spiluðu, ákefðin, sóknarleikurinn, þeir hlupu yfir Arsenal," segir Poyet.

„Seinni hálfleikurinn var aðeins öðruvísi, sérstaklega eftir þriðja markið. Arsenal höndlaði þetta ekki. Eftir frammistöðuna í gær held ég að Tottenham nái fjórða sætinu. Þeir eiga aðeins auðveldari leiki og þessi leikur í gær gæti gefið þeim byr undir báða vængi."

„Það er frábært fyrir fótboltaáhugamenn að vera ekki bara að horfa á titilbaráttuna heldur líka baráttuna um fjórða sætið."

Leikirnir sem liðin eiga eftir:
15. maí: Tottenham - Burnley
16. maí: Newcastle - Arsenal
22. maí: Norwich - Tottenham
22. maí: Arsenal - Everton

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.