Fotbolti.net
13.05.26 - 23:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Benoný spilar á Wembley

Benoný spilar á Wembley
Canon

Mynd: Stockport

Benoný Breki Andrésson og félagar í Stockport eru skrefi nær því að komast upp í Championship deildina eftir 2-0 sigur á Stevenage í seinni leik liðanna í undanúrslitum C-deildar umspilsins í kvöld.
Leikurinn fór fram á heimavelli Stockport en liðið vann útileikinn 1-0 og viðureignina því samanlagt 3-0. Benoný Breki kom inn á undir lokin í kvöld en þá voru úrslitin ráðin.

Liðið mætir annað hvort Bradford City eða Bolton í úrslitum. Bolton er með 1-0 forystu fyrir seinni leikinn á morgun. Úrslitaleikurinn fer fram þann 25. maí á Wembley.

Alex Freyr Elísson spilaði 73 mínútur þegear NSÍ tapaði 4-2 gegn KÍ í fyrri leik liðanna í undanúrslitum færeyska bikarsins. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari NSÍ.

Óttar Magnús Karlsson spilaði allan leikinn þegar Renate tapaði í umspili ítölsku C-deildarinnar 3-0 gegn Casarano en Renate tapaði niður 2-0 forystu úr fyrri leiknum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.