Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 22:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Foden: Verðum að halda Arsenal á tánum
Mynd: EPA
Man City er tveimur stigum á eftir Arsenal í tiitlbaráttunni þegar tvær umferðir. Liðið vann 3-0 sigur á Crystal Palace í kvöld en Phil Foden lagði upp tvö mörk.

„Svakalega mikilvæg úrslit. Við vorum allir spenntir að spila leikinn. Þetta var risastór skyldusigur," sagði Foden.

„Við verðum að halda áfram og halda þeim á tánum. Margt getur gerst á lokadeginum, ég hef oft upplifað það að leikurinn fari ekki eins og maður vill."

Foden hefur komið að 12 mörkum í deildinni á tímabilinu en aðeins þremur eftir áramót.

„Ég spilaði vel fyrri hluta tímabilsins en átti í vandræðum með aðkomast inn í liðið þegar svona frábærir leikmenn eru að spila betur en maður sjálfur. Ég hef þurft að vera þolinmáur oog æfa vel. Þetta snýst um hópinn og að allir taki þátt ef menn vilja vinna titla," sagði Foden.
Slapp
banner