Crystal Palace getur haft gríðarleg áhrif á titilbaráttuna á Englandi en liðið mætir Man City í kvöld og Arsenal í lokaumferðinni.
Ljóst er að það dugar fyrir Arsenal að vinna báða leikina sem liðið á eftir til að vinna titilinn. Oliver Glasner, stjóri Palace, var spurður að því fyrir leik kvöldsins hvernig væri að fara inn í leikinn vitandi að liðið geti haft mikil áhrif.

„Ef City vinnur alla þrjá leikina eiga þeir séns. Ef Arsenal vinnur báða eru þeir meistarar. Ég kíkti á launaseðilinn minn eftir spurninguna þína og ég fékk ekki borgað frá Arsenal eða Man City. Við hugsum um hvað er best fyrir okkur. Við höfum klárlega minni áhrif á titilbaráttuna en VAR," sagði Glasner.
Það var risastór ákvörðun í leik West Ham og Arsenal þegar VAR dæmdi mark West Ham af í blálokin. Arsenal vann leikinn 1-0.