Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 13. júní 2021 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild kvenna: KR vann Víking
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur 1-2 KR
0-1 Guðmunda Brynja Óladóttir ('17)
1-1 Nadía Atladóttir ('58)
1-2 Guðmunda Brynja Óladóttir ('73)
Rautt spjald: Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir, Víkingur ('85)

Einn leikur fór fram í Lengjudeild kvenna í dag. Topplið KR heimsótti Víking. Svo fór að gestirnir fóru með sigur að hólmi.

Staðan var 0-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. Guðmunda Brynja Óladóttir kom gestunum yfir. Nadía Atladóttir jafnaði fyrir Víking en Guðmunda skoraði síðan aftur og tryggði KR stigin þrjú.

Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir leikmaður Víkings fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt undir lok leiksins.

Eins og áður sagði, er KR á toppi deildarinnar með 15 stig eftir sex leiki en Víkingur í fjórða sæti með átta stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner