Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. júní 2022 19:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alltaf að verða harðari og harðari stuðningsmaður Warriors
Óttar í leik með Oakland Roots
Óttar í leik með Oakland Roots
Mynd: Oakland Roots
Óttar Magnús Karlsson er leikmaður Oakland Roots í Bandaríkjunum. Oakland var áður heimili NBA liðsins Golden State Warriors.

Warriors spilar núna heimaleiki sína í nýrri höll í San Francisco. Óttar segir þó að það sé mikil stemning fyrir liðinu í Oakland.

„Þeir eru búnir að færa sig yfir til San Francisco. Ég var einmitt að labba framhjá gamla vellinum þeirra áðan. Þrátt fyrir að þeir spili annars staðar núna þá klæðir fólk hér á svæðinu sig upp og kíkir á barinu, alveg stemning fyrir þessu," sagði Óttar við Fótbolta.net.

„Ég skellti mér á leik tvö í Finals á móti Celtics. Ég myndi segja að ég sé að verða harðari og harðari stuðningsmaður liðsins eftir því sem líður á dvölina hér," sagði Óttar.

Úrslitakeppnina í bandaríska körfuboltanum er nú í gangi og er staðan 2-2 í lokaúrslitunum - Finals - milli Boston Celtics og Golden State Warriors.

Leikur fimm í úrslitunum fer fram í nótt á íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Sjá einnig:
GOATar sló met sem hann hafði ekki hugmynd um - „Smá fyndið"
Óttari var stillt upp við vegg á lokadegi gluggans - „Voða skrítin lykt af þessu öllu saman"
Athugasemdir
banner
banner
banner