Fotbolti.net
13.07.15 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andrei Arshavin til Kuban Krasnodar (Staðfest)

Andrei Arshavin

Andrei Arshavin

Canon

Mynd: Getty Images

Rússneska félagið Kuban Krasnodar er búið að staðfesta kaup á Andrei Arshavin, en hann kemur frá rússnesku meisturunum í Zenit.

Þessi 34 ára gamli, fyrrum leikmaður Arsenal, kemur frítt til Kuban eftir að samningur hans hjá Zenit rann út.
Hann skrifar undir eins árs samning við Kuban, en félagið endaði í tíunda sæti á síðasta tímabili.

Arshavin á að baki 75 landsleiki fyrir Rússland, en hann spilaði síðast landsleik árið 2012.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.