Fotbolti.net
13.07.15 - 11:27
Magnús Már Einarsson

Asmir Begovic til Chelsea (Staðfest)

Asmir Begovic til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Twitter

Chelsea hefur keypt markvörðinn Asmir Begovic frá Stoke en talið er að kaupverðið hljóði upp á átta milljónir punda.

Hinn 28 ára gamli Begovic krotaði undir fjögurra ára samning hjá Chelsea.

Hann verður varamarkvörður fyrir Thibaut Courtois hjá félaginu og fyllir skarð Petr Cech sem fór til Arsenal á dögunum.
„Ég er mjög ánægður með að ganga til liðs við Chelsea FC,\" sagði Begovic.

„Eftir langt spjall við stjórann þá tel ég að ég geti bætt mig hér og verið mikilvægur hluti af liðinu.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.