13.07.15 - 12:32
Magnús Már Einarsson
Bastian Schweinsteiger til Man Utd (Staðfest)

Bastian Schweinsteiger.

Mynd: Heimasíða Manchester United

Bastian Schweinsteiger.

Mynd: Heimasíða Manchester United
Manchester United hefur staðfest kaupin á Bastian Schweinsteiger frá FC Bayern.
Schweinsteiger skrifaði undir þriggja ára samning hjá Manchester United en talið er að kaupverðið hljóði upp á 14,4 milljónir punda.
Hinn þrítugi Schweinsteiger hefur leikið allan sinn feril með Bayern en hann hefur skorað 70 mörk í 500 leikjum með liðinu.

„Ég hef notið tímans hjá Bayern Munchen. Þetta hefur verið ótrúlegt ferðalag og það var ekki auðveld ákvörðun að fara,\" sagði Schweinsteiger.
„Manchester United er eina félagið sem ég hefði farið frá Munchen fyrir. Ég er tilbúnin í nýja og spennandi áskorun í erfiðustu deild í heimi og ég hlakka til að vinna aftur með Louis van Gaal.\"
Schweinsteiger mun skella sér til Bandaríkjanna með liði Manchester United í dag.
„Ég þekki Bastian vel. Ég vann með honum hjá Bayern Munchen og er hæstánægður með að hann sé kominn til Manchester United,\" sagði Van Gaal.
„Ferill hans talar sínu máli. Hann hefur unnið alla mögulega titla með félagsliðinu og var stór hluti af landsliði Þýskalands sem vann HM í fyrra.\"
„Bastian er algjör atvinnumaður og það er enginn vafi á hæfileikum hans á að stjórna leikjum. Hann kemur með mikla reynslu og er frábær viðbót við hópinn okkar.\"