13.07.15 - 15:51
Magnús Már Einarsson
Claudio Ranieri tekinn við Leicester (Staðfest)

Mynd: Twitter

Mynd: Twitter
Claudio Ranieri, fyrrum stjóri Chelsea, hefur verið ráðinn stjóri Leicester í ensku úrvalsdeildinni.
Hann tekur við starfinu af Nigel Pearson sem var rekinn á dögunum.
Hinn 63 ára gamli Ranieri stýrði Chelsea frá 2000 til 2004 en síðan þá hefur hann komið víða við.
Undanfarin ár hefur Ranieri þjálfað Valencia, Parma, Juventus, Roma, Inter og Monaco.
Eftir HM í fyrra tók Ranieri við gríska landsliðinu en hann var stutt í starfi þar. Ranieri var rekinn í nóvember eftir tap á heimavelli gegn Færeyingum.