Fotbolti.net
13.07.15 - 12:47
Magnús Már Einarsson

Morgan Schneiderlin til Man Utd (Staðfest)

Morgan Schneiderlin til Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Manchester United

Manchester United hefur keypt miðjumanninn Morgan Schneiderlin frá Southampton. Kaupverðið er talið vera 25 milljónir punda.

Schneiderlin hefur skrifað undir fjögurra ára samning með möguleika á einu ári til viðbótar.
Það er skemmtilegt hádegi hjá stuðningsmönunm Manchester United en einungis nokkrar mínútur eru síðan Bastian Schweinsteiger var kynntur sem nýr leikmaður félagsins.

Hinn 25 ára gamli Schneiderlin er nú einnig kominn eftir að hafa verið í lykilhlutverki hjá Southampton síðan árið 2008.

„Ég er hæstánægður með að vera orðinn leikmaður Manchester United,\" sagði Schneiderlin.

„Um leið og ég frétti að United hefði áhuga á mér þá var þetta mjög auðveld ákvörðun.\"

„Ég hef notið þess að spila í sjö ánægjuleg ár með Southampton og félagið á alltaf eftir að vera í hjarta mínu. Að eiga möguleiki á að vera hluti af þessum hóp og hjálpa þessu frábæra félagi var hins vegar of gott til að hafna því.\"


Schneiderlin og Schweinsteiger eru báðir á leið með Manchester United í æfingaferð til Bandaríkjanna í dag.

„Ég er spenntur að fara í ferðina til Bandaríkjanna. Ég veit hvað Manchester United þýðir fyrir stuðningsmenn úti um allan heim og ég hlakka til að kynnast því,\" sagði Schneiderlin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.