13.07.15 - 07:30
Arnar Geir Halldórsson
Ruben Baraja tekur við Elche (Staðfest)

Ruben Baraja var öflugur leikmaður á sínum tíma

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Elche hefur gengið frá ráðningu á nýjum þjálfara fyrir næstu leiktíð.
Ruben Baraja mun stýra liðinu en hann var á sínum tíma öflugur leikmaður hjá nágrannaliði Elche, Valencia.
Baraja lék í La Liga í 17 ár, lengst af með Valencia, og lék 43 landsleiki fyrir Spánverja.
Þetta er hans fyrsta alvöru þjálfarastarf en hann stýrði B-liði Valencia í eitt tímabil og var aðstoðarþjálfari Atletico Madrid um tíma.
Elche kom á óvart og endaði í 13.sæti La Liga á síðustu leiktíð en missti sæti sitt í deildinni vegna skattaskulda og mun því hefja leik í B-deildinni á næstu leiktíð.