Fotbolti.net
13.07.15 - 19:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Stephan El Shaarawy lánaður til Monaco (Staðfest)

Stephan El Shaarawy er farinn til Monaco

Stephan El Shaarawy er farinn til Monaco

Canon

Mynd: Twitter

AS Monaco hefur klófest vængmanninn Stephan El Shaarawy á láni frá AC Milan.

Ákvæði er í lánssamningnum að Monaco geti keypt hann til félagsins á 16 milljónir evra á meðan á láninu stendur.
Samkvæmt heimildum verður Monaco skyldugt að borga upphæðina þegar að leikmaðurinn er búinn að leika ákveðið marga leiki fyrir félagið.

\"Það er frábær tilfinning að semja við Monaco. Ég er mjög ánægður og spenntur,\" sagði El Shaarawy í samtali við heimasíðu Monaco.

\"Ég vil þakka forseta félagsins fyrir þetta tækifæri og ég vonast til þess að eiga gott tímabil og gleðja stuðningsmennina.\"

Stephan El Shaarawy hefur átt erfitt með meiðsli undandarin tvö tímabil og með tilkomu Carlos Bacca og Luiz Adriano til AC Milan varð það ljóst að hann myndi yfirgefa félagið.

Heimild: ESPN

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.