Fotbolti.net
13.07.26 - 13:41
Elvar Geir Magnússon

James ánægður með að hafa unnið kapphlaup við tímann

Reece James kom inn af bekknum gegn Noregi.

Reece James kom inn af bekknum gegn Noregi.

Canon

Mynd: EPA

Reece James er klár í slaginn fyrir undanúrslitaleik Englands gegn Argentínu sem fram fer á miðvikudaginn.

James er fyrirliði Chelsea og hefur jafnað sig af meiðslum. Hann kom inn af bekknum í 2-1 sigrinum gegn Noregi eftir að hafa misst af þremur leikjum vegna meiðsla aftan í læri sem hann hlaut gegn Gana í riðlakeppninni.
James kom inn á miðsvæðið áður en hann var færður í sína vanalegu hægri bakvarðarstöðu. Mörk Jude Bellingham sendu England í undanúrslitin.

„Það er gott að vera aftur mættur á æfingar með strákunum. Þegar þú meiðist á móti er þetta alltaf kapphlaup vð tímann. Ég lagði mig allan fram og er ánægður með að vera kominn aftur," segir James.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.