Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
   fim 13. september 2018 14:00
Magnús Már Einarsson
Guðni um nýjan kvennalandsliðsþjálfara: Á von á að þetta verði Íslendingur
Guðni Bergsson.
Guðni Bergsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur hafið leit að eftirmanni Freys Alexanderssonar sem landsliðsþjálfari kvenna. Freyr lét af störfum eftir undankeppni HM í síðustu viku en hann er í dag aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins.

„Við erum byrjuð að velta þessu fyrir okkur og það má segja að leitin sé hafin. Við reynum að vanda okkur í þessu verki og svo kemur í ljós hver mun taka við af Frey," sagði Guðni Bergsson, formaður KSÍ, við Fótbolta.net í dag.

Dregið verður í undankeppni EM í lok febrúar á næsta ári og því er mikill tími til stefnu, mun meiri en var þegar ráða þurfti nýjan landsliðsþjálfara karla í sumar.

„Það er aðeins meiri tími og ágætt að hafa aukið svigrúm í því. Við erum búin að hefja þessa leit og viljum ekki vera of lengi að drolla við þetta. Við munum fara vel yfir málið og finna rétta eftirmanninn."

Guðni segir líklegra að nýr þjálfari verði Íslendingur frekar en erlendur þjálfari.

„Við erum ekki búin að útiloka neitt. Ég á frekar von á því að þetta verði Íslendingur en við munum ekki útiloka neitt á þessu stigi. Við munum fara yfir það hvaða valkostir eru í stöðunni og ræða við aðila í því sambandi. Við tökum síðan ákvörðun í kjöfarið."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner