Fotbolti.net
13.09.26 - 18:01
Viktor Ingi Valgarðsson

Benedikt Warén vill „Enda þetta season sem að við bjuggumst við meira frá okkur sem allra best"

Auglýsing
Benedikt Warén skoraði bæði mörk Stjörnunnar

Benedikt Warén skoraði bæði mörk Stjörnunnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan vann 2-0 sigur gegn ÍBV í dag. Benedikt Warén skoraði bæði mörk Stjörnunnar í fyrri hálfleik og fékk verðskuldað maður leiksins.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 ÍBV

„Þetta var góður fyrri hálfleikur, alls ekki góður seinni hálfleikur. Fínt að vinna, clean sheet og nú er bara að klára alla leikina sem eftir eru og klára tímabilið vel."

Seinni markið hans í dag var sérstaklega gott. Frábært skot utan teig sem söng í netinu. „Búin að reyna þetta nokkrum sinnum í sumar, hitti hann vel. Vindurinn hjálpaði kannski smá en bara sætt að sjá hann fara inn."

Sumir geta talið það krefjandi að gíra sig upp fyrir lið í stöðu einsog Stjarnan er í. Efstir í neðri hlutanum og gott sem öruggir frá falli. „Nei, við ætlum að gíra okkur vel í alla leiki. Líkt og í fyrra þá enduðum við ekki nógu vel og við ætlum að fara í alla leiki og bara vinna. Enda þetta season sem að við bjuggumst við meira frá okkur sem allra best."

Viðtalið við Benedikt Warén má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.